LEONARDO Fóðurtunna á hjólum 7,5kg
4.995 kr.
Gæða ferköntuð fóðurtunna úr plasti, á hjólum, með sérstökum þéttikanti og smellu til að gera tunnuna 100% lofthelda. Mæliglas fylgir með.
2 á lager
Lýsing
Gæða ferköntuð fóðurtunna úr plasti, á hjólum, með sérstökum þéttikanti og smellu til að gera tunnuna 100% lofthelda. Mæliglas fylgir með. Fóðurtunnan rúmar 7,5 kg af fóðri.
Með því að geyma fóðrið í loftheldri tunnu heldur þú ferskleika fóðursins lengur. Fitan þornar síður og þránar ekki. Okkar fóður inniheldur ekki gervi rotvarnarefni og því mælum við með því að þið geymið fóðrið alltaf í lokuðum ílátum.
Við mælum með að fóðurtunnan sé alltaf þrifin með mildri sápu og vatni áður en nýr poki er tæmdur ofan í hana. Eðli fitu er að setjast innan í fötuna, eftir því sem fitan verður eldri þránar hún og skemmist og getur hún þannig skemmt út frá sér nýtt fóður sem sett er í tunnuna.
Munið að þurrfóður skemmist fljótt ef það er geymt á gólfi með gólfhita, í raka, nálægt glugga þar sem sól skín á það eða í herbergi sem í verða miklar hitabreytingar. Fóður á að geyma á þurrum og köldum stað.
Hunda- og kattafóður er matur líkt og okkar og á að geymast á sama máta. Áhöldin þarf að sama skapi að þrífa líkt og eldhúsáhöldin okkar : matar- og drykkjarskálar, fóðurdallar og -tunnur, mæliglös og mæliskeiðar þarf að þvo reglulega.